Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus

Saltkaramellusæla með sítrónutvisti

Leiðbeiningar

Stífþeytið rjómann. Saxið Síríus rjómasúkkulaði með karamellu og salti frekar smátt. Skerið bollurnar í tvennt.

Setjið sítrónusmjör innan á hliðarnar á rjómasprautupokanum með skeið og setjið svo þeytta rjómann í miðjuna. Sprautið á bollurnar. Stráið um það bil einni teskeið af saxaða Síríus rjómasúkkulaðinu með karamellukurli og sjávarsalti ofan á rjómann. Setjið lokið á.

Saxið helminginn af Nóa Rjómakúlunum og geymið til skrauts. Bræðið hinn helminginn af kúlunum og Síríus suðusúkkulaðinu í vatnsbaði ásamt olíunni. Setjið yfir bollurnar og skreytið með saxaða rjómasúkkulaðinu og söxuðu rjómakúlunum.

Innihald

½ l rjómi

150 g Síríus rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti

Sítrónusmjör (Lemon Curd)

150 g Nóa rjómakúlur

50 g Síríus suðusúkkulaði

1 msk olía