Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus

Jarðarber með súkkulaðikremi

Leiðbeiningar

Fjarlægið grænu blöðin af jarðarberjunum. Skerið ofan af hinum enda jarðarberjanna og útbúið holu ofan í. Myljið Nóa Kroppið og setjið í litla skál. Bræðið súkkulaði og dýfið jarðarberjunum í það og síðan í mulið Nóa Kroppið. Setjið á bökunarpappír og kælið. Þeytið saman rjóma, vanilludropa og Mascarpone. Skiptið rjómablöndunni í tvennt og hrærið heslihnetusmjöri út í helminginn. Setjið kremin hvort í sinn pokann og klippið gat á hornin. Sprautið saman í hringi ofan í jarðarberin.

Innihald

15–20 jarðarber
2 dl Nóa Kropp
2 dl rjómi
75 g Síríus rjómasúkkulaði
1 tsk vanilludropar
100 g Mascarpone rjómaostur
2 msk Síríus heslihnetusmjör