Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus

Ávaxtabomba með Síríus Pralín

Fyrir 4

Leiðbeiningar

Myljið kexið og setjið 1⁄2 dl af rjóma saman við svo úr verði létt deig. Skiptið niður í 4 glös. Skerið ávextina smátt og deilið jafnt í glösin. Setjið 1 dl af rjóma í pott ásamt Síríus Pralín og hrærið þar til það er bráðið. Látið kólna lítillega áður en sósan er sett yfir. Bleytið makkarónurnar með Baileys og setjið yfir allt.

Innihald

8 súkkulaðikexkökur
1 1⁄2 dl rjómi
3 kíví
2 bananar
250 g jarðarber
200 g Síríus Pralín með karamellufyllingu
6 makkarónukökur, muldar
6 msk Baileys