Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus

Pandarefur

Leiðbeiningar

  1. Skerið eða stappið niður jarðarberin og saxið Pandakúlurnar smátt niður.
  2. Setjið ísinn í hrærivélina og hrærið á lágum hraða með K-inu.
  3. Bætið jarðarberjum, söxuðum Pandakúlum og karamellukurli saman við.
  4. Slökkvið þá á hrærivélinni, bætið karamellusósunni létt saman við með sleikju (ég keypti tilbúna heita karamellusósu en hitaði hana ekki, sprautaði bara beint úr flöskunni).
  5. Skiptið niður í glös, toppið með smá Pandakúlum, karamellusósu, karamellukurli og njótið.
  6. Það má einnig setja blönduna í skál og geyma í frysti í 1-2 klukkustundir áður en þið njótið. Ef þið gerið það er sniðugt að hræra nokkrum sinnum í blöndunni á meðan til að hún haldist „mjúk“ en samt frosin.

Innihald

  • 1 ½ l vanilluís
  • 150 g jarðarber
  • 70 g Pandakúlur með jarðarberjabragði
  • 70 g Pandakúlur  með saltkaramellubragði
  • 40 g karamellukurl frá Nóa Siríus
  • 4 msk. þykk karamellusósa