Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus

Súkkulaðiostakaka með Nóa Konfektflöskum

Fyrir 8-10

Leiðbeiningar

BOTNAR
Hitið ofninn í 180°C. Fínmalið möndlurnar. Stífþeytið eggjahvíturnar með sykrinum. Blandið hveiti, möndlum og söxuðu suðusúkkulaði gætilega saman við með sleif. Teiknið tvo 24 sm hringi á bökunarpappír, og smyrjið blöndunni á pappírinn. Bakið botnana í 10-12 mínútur eða þar til þeir eru ljósbrúnir.

OSTAKÖKUKREM
Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn í 5 mínútur. Þeytið rjómann og geymið. Hrærið síðan rjómaost, flórsykur og kornin úr vanillustönginni vel saman. Takið matarlímsblöðin úr vatninu, bræðið þau yfir vatnsbaði, kælið aðeins og hrærið matarlíminu svo saman við ostakremið. Blandið að lokum þeytta rjómanum gætilega saman við.

Leggið annan möndlubotninn á disk og setjið hring af lausbotna tertumóti utan um. Myljið helminginn af konfektflöskunum yfir botninn og dreifið svo helmingnum af ostakreminu yfir. Leggið hinn möndlubotninn ofan á, myljið afganginn af flöskunum yfir hann og dreifið afganginum af ostakreminu yfir.

Hellið bráðnu súkkulaði yfir ostakremið til skrauts. Kælið kökuna í 2-4 klukkustundir.

 

Innihald

BOTNAR
100 g möndlur
4 eggjahvítur
160 g sykur
50 g hveiti
50 g Síríus suðusúkkulaði, saxað


OSTAKÖKUKREM
4 matarlímsblöð
2 dl rjómi
400 g rjómaostur
120 g flórsykur
1⁄2 vanillustöng
1 askja Nóa konfektflöskur
100 g Síríus 70% súkkulaði, brætt yfir vatnsbaði