Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus

Bailey's trufflur

Leiðbeiningar

Setjið Bailey's og rjóma í pott og hitið að suðu.

Saxið á meðan súkkulaðið smátt og setjið í skál. Takið svo pottinn af hitanum og hellið blöndunni yfir súkkulaðið. Látið standa í 1 mínútu.


Hrærið þar til súkkulaðið er bráðið og blandan orðin samfelld og slétt. Geymið trufflublönduna í kæliskáp í 2 klukkustundir eða yfir nótt, eða þar til hún hefur stífnað.


Takið um það bil teskeið af massanum og mótið í kúlu. Veltið kúlunni upp úr sigtuðu kakói og setjið hana á plötu sem hefur verið klædd með bökunarpappír. Endurtakið þar til blandan er uppurinn.

Geymið trufflunar í kæli og verið þær fram kaldar.

Innihald

1/2 dl Bailey's líkjör
3/4 dl Rjómi
250 g Síríus suðusúkkulaði
Síríus kakóduft