Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus

Sörur

60 - 65 stk.

Leiðbeiningar

BOTN
Forhitið ofninn í 180°C. Hakkið herslihneturnar og möndlurnar í matvinnsluvél. Stífþeytið eggjahvítur. Blandið hnetunum og flórsykrinum varlega samanm við eggjahvíturnar með sleikju. Mótið kökurnar með teskeið og setjið á pappírsklædda ofnplötu. Bakið í 10-12 mínútur.

KREM
Þeytið eggjarauðurnar. Hitið vatn og sykur þar til það þykknar og verður að sírópi. Hellið sírópinu saman við eggjarauðurnar í mjórri bunu og haldið áfram að þeyta. Skerið smjörið í teninga og bætið út í. Næsta skref er að bæta kakói, vanillu og kaffi út í kremið. Þeytið í svolitla stund eða þar til kremið verður silkimjúkt. Kælið kremið áður en þið setjið það á kökurnar. Gott er að sprauta kreminu á kökurnar með sprautupoka eða nota teskeiðar til þess að smyrja kreminu á þær. Það er smekksatriði hversu mikið af kremi fer á kökurnar. Kælið kökurnar mjög vel (helst í frysti) áður en þær eru hjúpaðar með suðusúkkulaði.

HJÚPUR
Bræðið suðusúkkulaðið yfir vatnsbaði. Gott er að tempra súkkulaðið með því að bræða ¾ fyrst og blanda svo ¼ út í og hræra. Dýfið kremhlutanum á sörunum ofan í súkkulaðið. Gott er að geyma kökurnar í frysti. Takið þær út með smá fyrirvara áður en þið berið þær fram.

Innihald

BOTN
4 eggjahvítur
150 g möndlur
100 g heslihnetur
230 g flórsykur

KREM
4 eggjarauður
1 dl vatn
130 g sykur
250 g smjör, við stofuhita
2–3 msk Síríus kakóduft
1 tsk vanilla
1 msk sterkt uppáhellt kaffi

HJÚPUR
300 g Síríus suðusúkkulaði