Uppskriftir

Appelsínusúkkulaðimús með möndlum

Fyrir 8–10 manns

Leiðbeiningar

Súkkulaðimús
Saxið súkkulaði gróflega niður og setjið í skál. Hitið 200 ml af rjóma að suðu (95 gráður), hellið honum yfir súkkulaðið og látið standa þar til súkkulaðið hefur bráðnað alveg. Hrærið rjómann og súkkulaðið vel saman. Þeytið egg og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt. Þeytið restina af rjómanum, 200 ml, og blandið saman við egg ja- blönduna ásamt súkkulaðiblöndunni. Bætið því næst appelsínuberki og safa saman við og hrærið varlega með sleif svo músin falli ekki. Setjið músina í glös eða skálar og kælið í rúmar 2 klst. Geymist í kæli þar til borin fram.

Toppur
Rífið appelsínubörk og grófsaxið möndlur og setjið ofan á súkkulaðimúsina.

Innihald

Súkkulaðimús
400 ml rjómi
300 g Síríus suðusúkkulaði með appelsínu
4 egg
120 g sykur
2 msk appelsínusafi
Rifinn börkur af einni appelsín

Toppur
Rifinn appelsínubörkur
Grófsaxaðar möndlur