Uppskriftir

Döðlugott með lakkrískurli

Um það bil 25 stykki

Leiðbeiningar

Döðlur og smjör brætt saman í potti. Púðursykurinn er bræddur með þangað til döðlurnar eru orðnar mjúkar. Blandið Rice Krispies og lakkrískurli saman við og setjið í form í frysti í 10 mínútur. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hellið yfir Rice Krispies blönduna og frystið í um það bil 30 mínútur. Skerið í bita, berið fram og njótið.

 

Innihald

500 g döðlur, saxaðar smátt
250 g smjör
120 g púðursykur
150 g Kellogg's Rice Krispies
400 g Síríus rjómasúkkulaði
2 pokar Síríus sælkerabakstur Eitt Sett kurl