Uppskriftir

Pralín Karamellubúðingur

Fyrir 4

Leiðbeiningar

Skerið karamellusúkkulaðið í bita og setjið í pott ásamt mjólkinni. Bræðið súkkulaðið við vægan hita þar til allt hefur blandast vel saman. Takið pottinn af hellunni, látið standa í 10-15 mínútur og hellið síðan í skál. Þeytið rjómann og blandið varlega saman við súkkulaðiblönduna. Stífþeytið egg jahvíturnar og blandið þeim varlega saman við súkkulaðirjómann. Setjið búðinginn í skál og látið í kæli í að minnsta kosti klukkustund. Stráið karamellukurli yfir allt áður en hann er borinn fram.

 

Innihald

250 g Síríus Pralín með karamellufyllingu
500 ml rjómi
2 eggjahvítur
2 msk mjólk
150 g Nóa Síríus karamellukurl