Uppskriftir

Sælgætisskál með piparmynturjóma og heitri súkkulaðisósu

Fyrir 4

Leiðbeiningar

Setjið Nóa Kropp í botninn á skál og myljið marengsbotn yfir það. Þeytið rjóma og bætið piparmyntu Pralín varlega saman við með sleif. Setjið rjómann yfir Nóa Kroppið og síðan jarðarber yfir allt. Setjið piparmyntu Pralín, rjóma og síróp saman í pott og hitið við vægan hita. Berið fram með sælgætisskálinni.

 

Innihald

1 marengsbotn
150 g Nóa Kropp
250 ml rjómi
50 g Síríus Pralín með piparmyntu, saxað
250 g jarðarber, skorin í fernt

Piparmyntusúkkulaðisósa
150 g Síríus Pralín með pippfyllingu
2 dl rjómi
2 msk síróp