Uppskriftir

Mangóísterta mer Nóa Kropp botni

Leiðbeiningar

BOTN
Myljið Nóa Kroppið og hafrakexið gróflega, hvort í sínu lagi, til dæmis í poka, með kökukefli. Saxið Nóa tromp stykkin smátt. Blandið öllu vel saman. Bræðið smjör á lágum hita, bætið olíu við og hellið yfir. Hrærið vel saman, setjið í form og þrýstið vel niður. Kælið.

MANGÓÍS
Setjið allt í matvinnsluvél eða blandara, þeytið þar til allt er orðið jafnt og setjið ofan á botninn og frystið. Skreytið með afganginum af Nóa Kroppinu áður en tertan er borin fram.

Innihald

BOTN
200 g Nóa Kropp
225 g Graham hafrakex
3 stk Nóa Tromp stykki 45g
150 g smjör
2 msk olía

MANGÓÍS
5 bollar frosið mangó
2 1⁄2 bolli kókosmjólk
1⁄2 dós Mascarpone rjómaostur
2 msk sítrónusafi
2 msk síróp