Uppskriftir

Pistasíuís með súkkulaði og karamellu

2 ltr.

Leiðbeiningar

Ís
Þeytið eggjarauður og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt. Blandið púðursykri varlega saman við með sleif. Þeytið rjómann og blandið honum saman við með sleif og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Bætið vanilludropum saman við og hrærið. Grófsaxið súkkulaði og blandið saman við ásamt pistasíuhnetum og salti. Hellið ísblöndunni í kökuform eða form sem þolir frost.
Bræðið Pralín með karamellufyllingu í potti yfir lágum hita ásamt 3 msk
af rjóma. Hrærið þar til súkkulaðið hefur ná að bráðna alveg. Hellið yfir ísinn og hrærið aðeins í gegnum ísinn með hníf. Frystið ísinn í að lágmarki 5 klukkustundir. Ísinn geymist vel í 3 mánuði í frysti.

Toppur
Berið fram með bræddu Pippi með karamellufyllingu og pistasíuhnetum.

 

Innihald

Ís
6 eggjarauður
70 g sykur
120 g púðursykur
7 dl rjómi
2 tsk vanilludropar
200 g Síríus suðusúkkulaði
200 g pistasíuhnetur
1⁄2 tsk sjávarsalt
200 g Síríus Pralín með karamellu
3 msk rjómi

Toppur
Brætt Pralín súkkulaði með saltkaramellufyllingu
Pistasíuhnetur