Uppskriftir

Frönsk súkkulaðiterta með valhnetum

Leiðbeiningar

Hitið ofn í 160°C . Bræðið súkkulaði og smjör við hægan hita. Takið af hitanum. Þeytið egg með sykri, þar til þau eru ljós og létt. Blandið bráð saman við eggin á hægum hraða. Bætið valhnetum út í með sleif.

Setjið bökunarpappír í smelluform upp á brún. Bakið kökuna í 1 klukkustund eða þar til hún hreyfist ekki til í miðjunni þegar formið er hrist. Látið kólna á borði, hvolfið henni á tertudisk og setjið kremið á.

KREM
Hitið rjóma og Síríus suðusúkkulaði í vatnsbaði og dreifið yfir tertuna. Skreytið með jarðarberjum og flórsykri.

Innihald

BOTN
300 g 56% Síríus súkkulaði
200 g smjör
4 egg
200 g sykur
50–100 g valhnetur, saxaðar


KREM
1 1⁄2 dl rjómi
200 g Síríus suðusúkkulaði
jarðarber
flórsykur