Uppskriftir

Nammiterta með Nóa Kroppi

Leiðbeiningar

BOTN
Þeytið egg og sykur vel ásamt lyftidufti. Bætið Rice Krispies og Nóa Kroppi við með sleif. Setjið bökunarpappír á ofnplötu, myndið tvo hringi og bakið í 150°C heitum ofni í um það bil 45 mínútur.

FYLLING
Kælið botnana og setjið þeyttan rjóma og Nóa Kroppið á milli.

OFAN Á
Bræðið rjómasúkkulaðið yfir vatnsbaði og setjið yfir kökuna.

Innihald

BOTN
4 eggjahvítur
200 g sykur
2 tsk lyftiduft
7 1⁄2 dl Kellogg's Rice Krispies
1 dl saxað Nóa Kropp

FYLLING
1⁄2 l þeyttur rjómi
150 g Nóa Kropp

OFAN Á
150 g Síríus rjómasúkkulaði