Uppskriftir

Rice Krispies kaka með banana og karamellusósu

Leiðbeiningar

Bræðið smjör og súkkulaði saman við vægan hita í potti, hrærið sírópi saman við og blandið svo Rice Krispies saman við að lokum. Setjið blönduna í hringlaga form og kælið í að minnsta kosti 20-30 mínútur.

Rjómakrem
Þeytið rjómann og skerið bananana í bita. Einnig er hægt að stappa bananana. Blandið saman og setjið á kökuna.

Karamellusósa
Bræðið rjómakúlur í rjómanum við vægan hita, hrærið vel. Kælið sósuna í smá tíma og setjið svo ofan á kökuna.

Innihald

Botn
100 g smjör
100 g Síríus 56% súkkulaði
100 g Síríus Pralín með karamellufyllingu
4 msk síróp
5 bollar Kellogg's Rice Krispies

Rjómakrem
250 ml rjómi
2 bananar (þroskaðir)

Karamellusósa
150 g Nóa rjómakúlur
1⁄2 dl rjómi