Uppskriftir

Biscotti með Síríus suðusúkkulaði og möndlum

U.þ.b. 25 stk.

Leiðbeiningar

Hitið ofninn í 170 gráður og setjið smjörpappír á bökunarplötu. Hrærið smjör, sykur, púðursykur og kaffi saman þar til blandan verður ljós og létt. Bætið egg jum saman við, einu í senn og hrærið vel. Blandið hveiti, lyftidufti, salti og kanil saman í skál og blandið saman við deigið og hrærið varlega. Grófsaxið möndlur og súkkulaði, setjið saman við deigið og hrærið varlega þar til allt hefur náð að blandast vel saman. Setjið hveiti á eldhúsbekkinn eða bretti og hnoðið deigið léttilega svo það festist saman. Skiptið deiginu í 3 hluta og formið sívala hleifa, u.þ.b. 10 cm á breidd hvern, og setjið á bökunarplötuna. Bakið í 25 mínútur. Takið plötuna úr ofninum og látið standa í 10 mínútur. Skerið hleifana í u.þ.b. 2 cm þykkar sneiðar og leggið á plötuna með sárið upp. Bakið aftur í 10 mínútur. Snúið sneiðunum á hina hliðina og bakið í aðrar 10 mínútur. Takið úr ofninum og látið kólna. Biscotti á að vera stökkt eins og kex og er unaðslegt að dýfa í góðan kaffibolla.

Innihald

130 g smjör við stofuhita
120 g sykur
100 g púðursykur
1 msk skyndikaffiduft
2 egg 300 g hveiti
1 1⁄2 tsk lyftiduft
1⁄2 tsk sjávarsalt
2 tsk kanill
100 g möndlur
200 g Síríus suðusúkkulaði