Uppskriftir

Smákökur með hvítu súkkulaði og Oreo

U.þ.b. 25–30 stk.

Leiðbeiningar

Smákökur
Hitið ofninn í 170 gráður og setjið smjörpappír á tvær bökunarplötur. Hrærið smjör, púðursykur og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt. Bætið egg jum við, einu í senn, ásamt vanilludropum. Blandið hveiti, matarsóda, lyftidufti og salti saman í skál og bætið því rólega saman við. Grófsaxið hvítt súkkulaði og Oreo kexkökur og blandið því saman við deigið. Myndið jafnstórar kúlur úr deiginu og raðið með jöfnu millibili á bökunarplöturnar. Bakið í 8-10 mínútur. Leyfið kökunum að jafna sig og kólna áður en þið takið þær af plötunni.

Toppur
Bræðið hvítt súkkulaði yfir vatnsbaði þar til það hefur bráðnað alveg. Slettið súkkulaðinu óreglulega yfir hverja köku fyrir sig og setjið hakkaðar Oreo kexkökur ofan á.

Innihald

Smákökur
170 g smjör við stofuhita
150 g púðursykur
150 g sykur
2 egg
1 tsk vanilludropar
1 tsk matarsódi
1⁄2 tsk lyftiduft
1 tsk sjávarsalt
320 g hveiti
15 Oreo kexkökur
300 g Síríus hvítir súkkulaðidropar

Toppur
50 g Síríus hvítir súkkulaðidropar
Hakkaðar Oreo kexkökur