Unnie Arendrup hannar Síríuskönnuna í ár

Síríuskannan hefur verið órjúfanlegur hluti af súkkulaðihefð Íslendinga síðan árið 2013 og notið mikilla vinsælda ár hvert. Í ár er kannan hönnuð af hinni dönsku Unnie Arendrup, grafískum hönnuði og teiknara sem hefur verið búsett á Íslandi í 13 ár.

Þegar Unnie heimsótti Ísland í fyrsta sinn kynntist hún Nóa Síríus og ríkri sælgætis- og súkkulaðihefð Íslendinga. Hún varð sérstaklega vör við ást þjóðarinnar á samsetningu lakkríss og súkkulaðis. „Mér fannst þetta frekar skrítin samsetning til að byrja með,“ segir Unnie, „en í dag er þetta komið í hóp af mínu uppáhalds nammi.“

Unnie hefur alltaf haft gaman af því að teikna og skapa og segist heppin að geta kallað það vinnuna sína í dag. Stíll hennar er í stöðugri þróun, en í grunninn snýst hann alltaf um karaktersköpun og húmor. Þegar Nói Síríus hafði samband þurfti hún ekki að hugsa sig tvisvar um. „Um leið og ég heyrði hugmyndina fann ég að þetta verkefni ætti fullkomlega við mig," segir Unnie. „Að fá að sameina léttleikann og litríku karakterana sem einkenna teikningarnar mínar við rótgróið verkefni eins og Síríuskönnuna, ég vissi strax að þetta yrði skemmtilegt."

Innblásturinn að hönnuninni á könnunni sækir hún í hinn fullkomna vetrardag. „Fyrir mér snýst fullkominn vetrardagur um að leika sér úti í snjónum, fá rjóðar kinnar, koma svo inn í hlýjuna og fá sér heitt súkkulaði,“ segir Unnie. „Það er sannkallað vetrarævintýri.“

Síríuskannan er komin í valdar verslanir. Fólk getur eignast könnuna í kaupbæti þegar keyptir eru tveir pakkar af Síríus suðusúkkulaði á völdum sölustöðum. 

Hægt er að nálgast Síríuskönnuna 2026 í eftirfarandi verslunum:

  • Hagkaup
  • Bónus
  • Nettó
  • Fjarðarkaup
  • Melabúðin
  • Skagfirðingabúð Sauðárkróki 
  • Hliðarkaup Sauðárkróki