Gerum gott saman til framtíðar!

Ábyrg framleiðsla

Við hjá Nóa Síríusi erum það lánsöm að hafa verið samferða þjóðinni í rúm hundrað ár og súkkulaðið okkar hefur löngum verið hluti af gleðistundum hennar. En þar sem það er víst ekki heiglum hent að rækta kakóbaunir hér á norðurhveli jarðar þá eru kakóbaunirnar sem verða að uppáhalds súkkulaðinu þínu ræktaðar á Fílabeinsströndinni.

 

Framleiðslu í fjarlægum heimshluta fylgir mikil ábyrgð og rétt eins og við leggjum kapp á að tryggja okkar eigin starfsfólki gott vinnuumhverfi, þá viljum við stuðla að bættum lífskjörum kakóbænda og kakóræktarsamfélaga. Með því erum við hluti af því verkefni að tryggja sjálfbærni kakóræktunar til framtíðar og komum í veg fyrir beiskt eftirbragð misnotkunar á vinnuafli og slæmrar umgengni við náttúruna.

Betri heimur með hverjum bita

Þannig gleður þú ekki bara bragðlaukana þegar þú færð þér uppáhalds Síríus súkkulaðið þitt, þú bætir líka heiminn örlítið með hverjum bita. Frá árinu 2013 hefur uppáhalds Síríus súkkulaðið þitt nefnilega verið vottað af samtökum sem nefnast Cocoa Horizons. Það þýðir að kakóhráefnið í súkkulaðið er ræktað á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi.

Fyrir umhverfið

Bændur eru aðstoðaðir við að auka fjölbreytileika uppskerunnar og nýta land sitt betur. Það er mjög mikilvægt því gamaldags ræktunaraðferðir ýta undir einhæfa flóru og draga úr frjósemi jarðvegsins. Þetta veldur því að sækja þarf á nýjar lendur og oft eru það regnskógarnir sem þurfa að víkja í þessari leit að nýju ræktarlandi. Þannig eru umhverfisáhrifin af þróaðri ræktunaraðferðum afar jákvæð því þau draga úr eyðingu regnskóga og ýta undir fjölbreyttara lífríki á svæðinu. Hráefnið í súkkulaðið þitt er þannig framleitt á eins umhverfisvænan hátt og kostur er.

Í sátt við samfélagið

Lífsafkoma fjölskyldna á kakóræktarsvæðunum er viðkvæm, enda atvinnustarfsemin einhæf og hefur verið fyrst og fremst í höndum karla. Þessu viljum við breyta. Þannig hefur valdefling kvenna á kakóræktarsvæðum verið sett á oddinn, m.a. í því skyni að stuðla að auknu öryggi í tekjuöflun heimila. Annað mikilvægt atriði þegar kemur að lífsgæðum er menntun en í dag gengur um helmingur barna á svæðunum í skóla. Efling skólastarfs hefur þegar skilað miklum árangri og stefnan er sett enn hærra.

 

Auk ofangreindra atriða má nefna verkefni sem tryggja öruggara neysluvatn og bætt aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Þú getur því verið viss um að hráefnið í þitt Síríus súkkulaði var búið til í sátt við samfélagið með það að markmiði að auka almenn lífsgæði.

Augljós uppruni

Nei, þetta er ekki of gott til að vera satt. Nýjasta tækni sér til þess að við getum rakið baunirnar til ákveðinna kakóræktarsamfélaga sem tryggir að hráefnið sem fer í allt Nóa súkkulaði er vottað. Cocoa Horizons eru sjálfstætt starfandi samtök sem eru með höfuðstöðvar í Sviss en þarlend stjórnvöld sjá um árlega úttekt á störfum þeirra og framvinduskýrslum.

Enn betra súkkulaði

Þú átt þá kröfu að það hráefni sem fer í uppáhalds súkkulaðið þitt sé ræktað við mannúðlegar aðstæður sem ógna ekki lífríki jarðar. Hafðu það í huga næst þegar þú færð þér bita af gómsætu Síríus súkkulaði – við erum sannfærð um að það muni smakkast jafnvel enn betur.