Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus
Brownie smákökukarlar
Brownie smákökukarlar úr blautri klesstri brownie með Rice Krispies
Leiðbeiningar
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
- Bræðið smjörið og leyfið því að kólna örlítið.
- Þeytið saman egg og sykur í nokkrar mín eða þar til blandan er orðin létt og ljós og myndar borða. Hellið smjörinu út í ásamt vanilludropum og hrærið á meðan.
- Setjið hveiti og kakó út í og blandið öllu vel saman með sleikju. Bætið því næst Rice Krispies út í og veltið því varlega saman við.
- Hellið deiginu ofan í 20×30 cm form sem hefur verið klætt með smjörpappír og bakið í u.þ.b. 20 mín.
- Takið smákökukarla form og skerið út smákökukarla.
- Bræðið suðusúkkulaðið og hjúpið smákökukarlana, leyfið súkkulaðinu að harðna.
- Bræðið hvíta súkkulaðið og setjið í sprautupoka með litlum hringlaga stút, sprautið andlit, hneppur og ermar á smákökukarlinn.
Innihald
- 125 g smjör
- 300 g sykur
- 2 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 110 g hveiti
- 40 g kakó
- 40 g Rice Krispies
- 200 g Nói Síríus suðusúkkulaði
- 50 g hvíttir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus