Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus

Súkkulaði orkustykki

Leiðbeiningar

  1. Myljið kasjúhneturnar svolítið niður í blandara og setjið svo í skál ásamt, graskersfræjum, sólblómafræjum og sesamfræjum.

 

  1. Setjið hlynsíróp í pott/pönnu og leyfið því að sjóða aðeins í pottinum. Setjið möndlusmjör út í pottinn og hrærið saman við, bætið svo mjólkinni út í og hrærið saman við. Hellið blöndunni út í skálina með fræblöndunni og hrærið saman við.

 

  1. Bætið Nóa Kroppinu út í og blandið öllu vel saman.

 

  1. Setjið smjörpappír í 25×25 cm form (eða sambærilega stórt) og pressið blöndunni þétt niður.

 

  1. Bræðið hvíta súkkulaðið og deifið yfir ásamt graskersfæjum, setjið inn í ísskáp í u.þ.b. 30 mín og skerið svo í bita.

Innihald

  • 300 g kasjúhnetur
  • 1 1/2 dl graskersfræ + fleiri til að skreyta með
  • 1 1/2 dl sólblómafræ
  • 1/2 dl sesamfræ
  • 70 ml hlynsíróp
  • 1 dl möndlusmjör
  • 4 msk möndlumjólk (eða önnu mjólk)
  • 200 g Nóa Kropp
  • 150 g Hvítt súkkulaðidropar frá Nóa Síríus