Uppskriftir
Trítlabollur með karamellukremi
Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Völlu - Valgerði G. Gröndal

Leiðbeiningar
Vatnsdeigsbollur
Hitið vatn í potti og bætið smjöri saman við. Látið sjóða í smá stund. Setjið hveiti og salt saman við og hrærið rösklega saman í pottinum. Kælið deigið með því að setja það í hrærivélaskálina og dreifa því upp á skálarbrúnirnar. Setjið egg í mælikönnu og pískið saman. Ef eggin eru mjög stór er ekki víst að það þurfi alveg 3 egg svo það er betra að píska þau saman og skilja smá eftir. Þegar deigið er orðið volgt má byrja að hræra það með hræraranum (káinu) og setja eggin út í í smá skömmtum.
Hitið ofninn í 175°C blástur. Setjið deigið á plötu klædda bökunarpappír með góðu millibili. Stærðin fer eftir smekk en best er að nota sprautupoka en einnig er fínt að nota matskeiðar. Bakið í að minnsta kosti 30 mín. Jafnvel má fara alveg upp í 40 mín ef þið viljið hafa bollurnar frekar þurrar en þannig eru líka minni líkur á því að þær falli. Aldrei opna ofninn fyrr en eftir a.m.k 25 mín.
Karamellukrem
Saxið súkkulaðið og setjið í hitaþolna skál. Setjið rjómann í lítinn pott og hitið að suðu. Það er líka hægt að hita rjómann í örbylgjuofni. Hellið rjómanum yfir, setjið disk yfir skálina og látið standa í 2-3 mín. Hrærið saman og látið kólna alveg.
Skerið bollurnar í tvennt og setjið smá karamellukrem í botninn og sprautið rjóma yfir. Setjið lokið ofan á og dreifið meira af karamellukremi yfir. Skreytið með trítlum, súkkulaðiperlum og karamellukurli.
Innihald
Vatnsdeigsbollur
2 dl vatn
80 g smjör
125 g hveiti
Salt á hnífsoddi
2-3 egg
¼ l rjómi
Karamellukrem
100g Síríus Doré karamellusúkkulaði
¼ bolli rjómi
Skraut ofan á
Nóa Trítlar
Síríus Súkkulaðiperlur
Síríus Karamellukurl