Uppskriftir

Amerískar pönnukökur

Með ferskum berjum og súkkulaðisósu

Leiðbeiningar

PÖNNUKÖKUR
1. Sigtið hveiti, lyftiduft og salt saman í skál.
2. Bræðið smjör, leggið til hliðar og kælið.
3. Þeytið egg og mjólk saman.
4. Blandið öllum hráefnum saman í skál þar til deigið er silkimjúkt.
5. Hitið smá smjör á pönnukökupönnu og steikið pönnukökurnar í ca. mínútu eða tvær á hvorri hlið. Þær eru tilbúnar þegar þær eru gullinbrúnar.

SÚKKULAÐISÓSA
1. Bræðið rjómakúlurnar og suðusúkkulaðið í rjómanum við vægan hita og hrærið.
2. Berið fram með pönnukökunum og ferskum berjum.

Saxa má niður Nóa Kropp eða karamellukurl til að sáldra yfir.

Innihald

PÖNNUKÖKUR
5 dl hveiti
3 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
3 msk smjör (brætt)
1 egg
2 ­3 dl mjólk
4 dl súrmjólk
1 tsk vanilla
150 g Síríus rjómasúkkulaðidropar

SÚKKULAÐISÓSA
150 g Síríus rjómakúlur
50g Síríus suðusúkkulaði
1 dl rjómi