Uppskriftir

Bananatriffli

með karamellusósu, nóakroppbotni og ferskum berjum fyrir 4

Leiðbeiningar

Myljið Nóa Kropp mjög fínt og bætið bræddu smjöri saman við.

Þeytið rjómaost, rjóma, flórsykur og vanilludropa saman þar til blandan verður létt.

Bræðið hvítu súkkulaðidropana yfir vatnsbaði og hellið út í rjómaostinn.

Bræðið sykur á pönnu við vægan hita, ekki hafa háan hita þar sem sykurinn getur auðveldlega brunnið.

Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við.

Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er orðin þykk og fín.

Í lokin bætið þið niðurskornum bönunum út í og smá sjávarsalti.

Skiptið Nóa kroppinu í glös, því næst fer rjómaostblandan og svo er það bananakaramellusósan og endurtakið leikinn þar til þið eruð komin með tvö lög af hráefnunum.

 

Innihald

250 g Nóa Kropp 
50 g brætt smjör
300 g hreinn rjómaostur
100 ml rjómi
100 g Síríus hvítir súkkulaðidropar
2 tsk flórsykur
1 tsk vanilludropar
2 bananar
1 dl sykur
2 msk smjör
1 dl rjómi