Uppskriftir

Kirsuberjakossar

u.þ.b. 25 stk.

Leiðbeiningar

Setjið smjörpappír á plötu og setjið til hliðar. Hellið vökvanum af kirsuberjunum og raðið þeim á pappír til þess að þurrka þau. Hnoðið marsípan og flórsykur þar til það hefur blandast vel saman. Fletjið marsípanið út þar til það er orðið u.þ.b. 0,5 cm á þykkt. Gott er að hafa vel af flórsykri þegar þið fletjið marsípanið út svo það festist ekki við borðið. Skerið út u.þ.b. 5 x 5 cm ferninga. Setjið marsípanið utan um hvert kirsuber fyrir sig og myndið fallega kúlu. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði þar til það hefur bráðnað alveg. Dýfið kirsuberjunum ofan í súkkulaðið og leggið á smjörpappírinn. Gott er að setja kirsuberin í kæli þar til súkkulaðið hefur náð að storkna. Geymist í kæli þar til kossarnir eru bornir fram.

 

Innihald

1 krukka af kirsuberjum með stilkum
200 g marsípan
80 g flórsykur
250 g Síríus suðusúkkulaði