Uppskriftir

Kúlugott

Um það bil 35 litlar kúlur

Leiðbeiningar

Látið öll hráefnin saman í hrærivél og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Hnetusmjör hefur mismunandi áferð þannig að ef kúlurnar eru of blautar, bætið þá meiri flórsykri saman við, en bætið við meira hnetusmjöri ef þær eru of þurrar. Hnoðið litlar kúlur úr deiginu. Dýfið þeim í brætt súkkulaðið og geymið á ofnplötu með smjörpappír þar til súkkulaðið hefur harðnað. Geymið í kæli eða frysti.

Innihald

260 g hnetusmjör
50 g Kellogg's Rice Krispies
300 g flórsykur
30 g smjör, brætt
300 g Síríus suðusúkkulaði