Uppskriftir

Nóa trufflur

Um 35 stk.

Leiðbeiningar

Setjið rjómann og smjörið í pott og hitið að suðu. Bætið súkkulaðinu út í og hrærið þar til það bráðnar. Takið af hellunni og kælið smávegis áður en muldu konfektflöskunum og Nóa Kroppi er bætt út í. Kælið vel. Mótið kúlur og veltið þeim upp úr muldum hnetum eða hjúpið með bræddu súkkulaði. Geymist vel í ísskáp.

Innihald

2 1⁄2 dl rjómi 
4 msk. smjör
500 g Síríus suðusúkkulaði 
6-8 Nóa konfektflöskur 4 dl Nóa Kropp, mulið
Muldar hnetur eða brætt súkkulaði til skrauts.