Uppskriftir

Ostakaka í glasi

með ljúffengri karamellusósu

Leiðbeiningar

1. Setjið Nóa Kropp, Rice Krispies og suðusúkkulaði í matvinnsluvél og maukið. Bræðið smjör og hellið saman við. Geymið súkkulaðiblönduna.
2. Þeytið saman rjómaost og rjóma þar til blandan verður létt og ljós, bætið flórsykri og vanilludropum saman við.
3. Bræðið rjómasúkkulaði yfir vatnsbaði og hellið í mjórri bunu saman við rjómaostablönduna og hrærið hægt á meðan.
4. Bræðið rjómakúlurnar í rjómanum og kælið svolítið.
5. Skiptið Rice Krispies blöndunni niður í glös, því
næst fer rjómaostablandan og svo er það ljúffenga karamellusósan. Endurtakið þar til þið eruð komin með tvö til þrjú lög.
6. Skreytið gjarnan með hindberjum!


Jarðarber eða önnur sæt ber henta líka í stað hindberja. 

 

Innihald

250 g Nóa Kropp
2 dl Rice Krispies
50 g Síríus suðusúkkulaði
50 g brætt smjör
350 g hreinn rjómaostur
100 ml rjómi
2 tsk flórsykur
1 tsk vanilludropar
150 g Síríus rjómasúkkulaði
150 g Nóa rjómakúlur
1 dl rjómi
Hindber til skrauts