Uppskriftir

Súkkulaði trufflur með karamellukurli og salthnetum

U.þ.b. 25 stk.

Leiðbeiningar

Trufflur
Setjið smjörpappír á plötu og setjið til hliðar. Hitið rjóma í potti yfir meðalháum hita að suðumarki. Lækkið hitann og setjið súkkulaði, smjör og vanilludropa saman við. Hrærið duglega þar til blandan hefur þykknað vel. Setjið súkkulaðiblönduna í skál, blandið karamellukurli og hökkuðum salthnetum saman við og hrærið með sleif. Kælið súkkulaðiblönduna í kæli í u.þ.b. 2 klst. Passið að kæla súkkulaðiblönduna ekki of lengi því
þá verður hún of hörð til þess að vinna með. Myndið litlar kúlur, u.þ.b.
2 cm stórar, og raðið á plötu.

Toppur
Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði þar til súkkulaðið hefur náð að bráðna alveg. Dýfið hverri trufflu/kúlu ofan í súkkulaðið og leggið á plötu. Skreytið með hökkuðum salthnetum. Gott er að setja trufflurnar inn í kæli þar til súkkulaðið hefur náð að storkna. Geymið í kæli þar til trufflurnar eru bornar fram.

Innihald

Trufflur
1 dl rjómi
250 g Síríus rjómasúkkulaði
10 g smjör
1 tsk vanilludropar
150 g Síríus karamellukurl
80 g salthnetur

Toppur
250 g Síríus suðusúkkulaði
Hakkaðar salthnetur