Uppskriftir

Pippsúkkulaðiís

fyrir 8-10

Leiðbeiningar

1. Þeytið rjómann.

2. Þeytið eggjarauðurnar og púðursykurinn mjög vel saman í annarri skál þar til létt, ljóst og blandan myndar borða ef þeytarinn er tekinn upp og deigið lekur aftur
í skálina.

3. Blandið rjómanum varlega saman við eggjarauðublönduna með sleikju.

4. Skerið pralín súkkulaðið niður og blandið því saman við.

5. Hellið ísnum í form, lokið því t.d. með plastfilmu og frystið yfir nótt (eða lengur).

 

Innihald

500 ml rjómi
6 eggjarauður 170 g púðursykur
200 g Síríus pralín súkkulaði með pippfyllingu