Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus
Smash ísterta
Leiðbeiningar
- Setjið smelluhringform án botnsins á kökudisk, athugið hvort diskurinn komist ekki örugglega fyrir í frystinum.
- Brjótið marengsbotninn niður og setjið á kökudiskinn með smelluformshringnum.
- Setjið vanilluuísinn (sem þarf að vera svolítið mjúkur) ofan á marengsinn og pressið hann niður. Raðið Smash súkkulaðinu ofan í ísinn þannig að mjói endinn snúi niður í ísinn. Smellið öllu í frysti þar til ísinn hefur náð að harðna aftur.
- Takið úr frysti og fjarlægið smelluformshringinn, þeytið rjóma og setjið ofan á ístertuna. Skreytið með meira Smash súkkulaði og berjum.
Innihald
- Tilbúinn marengsbotn
- 1 líter vanillu rjómaís
- 200 g (2 pokar) Smash súkkulaði
- 250 ml rjómi
- Ber sem þér finnst falleg og góð (t.d. jarðaber, hindber, rifsber, bláber eða brómber)