Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus
Afmæliskakan
fyrir 8 - 10
Leiðbeiningar
BOTN
Forhitið ofninn í 180°C og smyrjið tvö hringlaga form. Þeytið sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós. Bætið eggjum við, einu í einu, og þeytið vel á milli. Bætið þurrefnum saman við ásamt mjólk og vanillu. Skiptið deiginu jafnt niður í tvö smurð hringlaga form og bakið við 180°C í 22–25 mínútur. Kælið kökubotnana mjög vel áður en þið setjið á þá krem!
SÚKKULAÐIKREM
Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði. Þeytið smjör og flórsykur, hellið súkkulaðinu saman við og þeytið áfram. Bætið kakói, vanillu og kaffi út í og þeytið þar til kremið er orðið silkimjúkt. Smyrjið á milli botnanna og setjið karamellusósuna yfir kremið á milli. Þekjið einnig alla kökuna með kreminu og skreytið með litríku sælgæti, til dæmis Nóa Trítlum.
KARAMELLUSÓSA Á MILLI
Bræðið kúlurnar í rjómanum við vægan hita, setjið í skál og geymið í kæli þar til sósan stífnar. Setjið á milli botnanna ásamt smjörkreminu.
Innihald
BOTN
150 g sykur
150 g púðursykur
130 g smjör, við stofuhita
2 egg
1 tsk matarsódi
260 g hveiti 2 tsk lyftiduft
50 g Síríus kakóduft
2 tsk vanilludropar
2 dl mjólk
SÚKKULAÐIKREM
500 g flórsykur
250 g smjör, við stofuhita
150 g Síríus suðusúkkulaði
2 msk Síríus kakóduft
1–2 msk uppáhellt kaffi
1 tsk vanilludropar
KARAMELLUSÓSA Á MILLI
100 g Nóa rjómakúlur
1⁄2 dl rjómi
TIL SKRAUTS
Litríkt sælgæti t.d Nóa Trítlar