Uppskriftir

Ljúffengt bananabrauð

Bananabrauðið sem allir elska

Leiðbeiningar

1. Forhitið ofninn í 180°C.
2. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós.
3. Bræðið smjörið við vægan hita og leggið til hliðar.
4. Sigtið saman hveiti og lyftiduft að minnsta kosti tvisvar sinnum og blandið við egg jablönduna.
5. Stappið banana og bætið saman við ásamt vanilludropunum, mjólkinni og smjörinu.
6. Saxið niður súkkulaðið og blandið saman við deigið með sleif.
7. Smyrjið form og hellið deiginu í formið, ég sáldra alltaf svolitlu haframjöli yfir en það er algjörlega valfrjálst.
8. Bakið við 180°C í 45 – 50 mínútur.

Innihald

2 egg
2 dl sykur
2 þroskaðir bananar
60 g smjör
3 1/5 dl hveiti
1 tsk vanilludropar
1/2 dl mjólk
2 tsk lyftiduft
150 g Síríus rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti