Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus

Marensterta með Trompi og jarðaberjum

fyrir 10-12.

Leiðbeiningar

BOTNAR
Hitið ofninn í 150°C. Þeytið eggjahvítur og sykur mjög vel saman eða þar til blandan verður alveg stíf. Skiptið marensinum í tvennt og mótið tvo 24 sm hringi á pappírsklæddri bökunarplötu. Bakið botnana í miðjum ofni í eina klukkustund. Lækkið þá hitann í 100°C og bakið í 30 mínútur í viðbót. Látið botnana kólna alveg.

SKRAUT
Þeytið rjómann og blandið trompkurli saman við. Dreifið helmingnum af rjómanum á milli botnanna og hinum helmingnum ofan á kökuna. Skreytið með jarðarberjum og söxuðu Nóa Lakkrís Trompi.

Innihald

BOTNAR
4 eggjahvítur 
200 g sykur 
500 ml rjómi 
2 pokar Síríus Trompkurl

SKRAUT
Jarðarber 
2 stk. Nóa Lakkrís Tromp, skorið í litla bita