Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus
Pipp terta
Fyrir 8-10
Leiðbeiningar
BOTNAR
Hitið ofninn í 180°C og smyrjið tvö 24 sm lausbotna form. Blandið öllu saman í skál og hrærið vel í stutta stund. Hellið deiginu í formin og bakið í 15–20 mínútur.
FYLLING
Þeytið saman smjör og flórsykur. Saxið súkkulaðið og blandið því saman við. Hrærið vel í kreminu og smyrjið því síðan á milli botnanna.
KREM
Setjið síróp í pott ásamt vatni og smjöri. Látið suðuna koma upp og sjóðið í 2 1⁄2 mínútu. Takið pottinn af hitanum. Brytjið súkkulaði saman við, hrærið og bætið piparmyntudropum út í. Hellið kreminu yfir kökuna og látið hana standa í kæli á meðan kremið stífnar. Skreytið með afganginum af pralín pipp súkkulaðinu.
Innihald
BOTNAR
3 dl hveiti
2 1⁄2 dl sykur
1⁄2 dl kakó
2 tsk. lyftiduft
1⁄2 tsk. matarsódi
1 tsk. vanilludropar 100 g mjúkt smjör
2 egg
1 1⁄2 dl súrmjólk
1⁄2 dl sterkt kaffi
FYLLING
150 g mjúkt smjör
1 dl flórsykur
160 g Síríus pralín súkkulaði með pippfyllingu
KREM
1 1⁄2 dl síróp
1⁄2 dl vatn
1⁄2 bolli mjúkt smjör
300 g Síríus suðusúkkulaði
1 tsk. piparmyntudropar