Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus
Dúnmjúkar kanilsmákökur
með Nóa karamellukurli 18 - 20 stk.
Leiðbeiningar
Forhitið ofninn í 180°C. Þeytið smjör, rjómaost og báðar sykurtegundir saman þar til blandan verður kremkennd. Bætið eggjum út í, einu í einu, og hrærið vel á milli. Blandið vanillu, hveiti, lyftidufti, salti og kanil saman við deigið og hrærið vel í. Bætið mjólkinni við í smáum skömmtum. Bætið karamellukurlinu út í rétt í lokin og blandið vel saman við deigið. Kælið deigið í ísskáp í 10 mínútur. Mótið litlar kúlur með tveimur teskeiðum og rúllið upp úr kanilsykrinum. Setjið kökurnar á pappírsklædda ofnplötu og inn í ofn við 180°C í 8–10 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar. Bræðið hvítt súkkulaði og dreifið yfir kökurnar er þær koma út úr ofninum.
Innihald
230 g smjör
200 g hreinn rjómaostur
225 g sykur
225 g púðursykur
2 stk egg
3 tsk vanilludropar
600 g hveiti
1⁄2 tsk salt
1 tsk lyftiduft
3 tsk kanill
4 msk mjólk
150 g Síríus karamellukurl
100 g Síríus hvítir súkkulaðidropar til að dreifa yfir kökurnar
KANILSYKUR
100 g sykur
2 tsk kanill