Uppskriftir

Karamellu Doré sörur með marsípan botni og karamellukremi

Þessi girnilega uppskrift var unnin í samstarfi við Völlu hjá GRGS.

Leiðbeiningar

  1. Hitið ofninn í 180°C blástur.
  2. Þeytið saman eggjahvítur og sykur þar til blandan verður að stífum marengs.
  3. Rífið marsípanið saman við og hrærið varlega með sleikju.
  4. Setjið marengsinn í sprautupoka með kringlóttum stút og sprautið litlar kökur á bökunarpappírsklædda ofnplötu.
  5. Gott er að hafa kökurnar í minni kantinum eða um 2 cm í þvermál.
  6. Bakið í 13-15 mín, fer eftir ofnum. Þær eru tilbúnar þegar þær eru orðnar gullbrúnar. Kælið vel áður en haldið er áfram.

 

  1. Krem
  2. Setjið smjörið í skál og þeytið vel með handþeytara. Setjið rauðurnar, vanilludropana, karamelluna og flórsykurinn saman við og þeytið áfram. Skafið niður hliðarnar og þeytið áfram í góða stund. Best er að þeyta kremið vandlega. Þegar það er tilbúið veltið því aðeins fram og til baka í skálinni með sleikju til þess að losa aðeins um loftbólurnar sem myndast. Setjið kremið í sprautupoka með kringlóttum stút og sprautið á hverja köku. Magn eftir smekk. Frystið botnana með kreminu.

 

HJÚPUR

300g Karamellu Doré súkkulaði dropar frá Nóa Síríus

Þegar kökurnar eru frosnar í gegn útbúið þið hjúpinn.

Setjið Karamellu Doré súkkulaði dropana í skál sem þolir að fara í örbylgjuofn. Stillið á næstmesta hita og hitið súkkulaðið í 15 sekúndur í senn og hrærið á milli. Þegar það er orðið vel bráðið en enn heilir bitar eftir takið þá skálina út og hrærið þangað til það er allt brætt. Þetta er svona lata aðferðin við að tempra súkkulaði og kemur alltaf vel út hjá mér.

Dýfið hverri köku í súkkulaðið og setjið á plötu. Gott er að vera með hreina og raka tusku við höndina og þurrka af fingrunum þegar þess þarf.

Þegar kökurnar hafa allar verið hjúpaðar fara þær aftur í frystinn. Þegar þær eru frosnar í gegn er gott að setja þær í loftþétt box. Geymið í frystinum þar til það á að bera þær fram.

 

 

Innihald

Botnar:

2 eggjahvítur

1 dl sykur

250g kalt marsípan, rifið fínt

Karamellukrem:

200g mjúkt smjör

2 eggjarauður

1 tsk vanilludropar

½ dl þykk karamellusósa,  sjá uppskrift neðar

3 dl flórsykur

Karamellusósa:

200g sykur

90g smjör í bitum

1/2 bolli rjómi

1/2 tsk sjávarsalt

Bræðið sykur við vægan hita og hrærið stöðugt í. Þegar sykurinn er bráðinn og orðinn vel gylltur, jafnvel svona "amber" litaður bætið þið smjöri út í í nokkrum bitum og hrærið aðeins í, hellið rjóma varlega saman við. Hrærið vel og bætið sjávarsalti út í að síðustu.