Uppskriftir

Kókostoppar

Um það bil 24 stykki

Leiðbeiningar

Þeytið egg og sykur saman. Bætið kókosmjöli, vanillusykri, rjómasúkkulaði og appelsínuberki vel saman við með sleif. Setjið deigið á plötu með teskeið. Bakið í 180°C heitum ofni í 10-12 mínútur. Takið úr ofni og leyfið að kólna. Bræðið Konsum súkkulaði, dýfið neðsta hluta kókostoppanna ofan í súkkulaðið og setjið á ofnplötu með smjörpappír þar til súkkulaðið hefur harðnað.

 

Innihald

2 egg
2 dl sykur
5-6 dl kókosmjöl
1 tsk vanillusykur
50 g Síríus rjómasúkkulaði, saxað
50 g appelsínubörkur, rifinn
150 g Síríus rjómasúkkulaði dropar, bræddir