Uppskriftir

Lakkrístoppar

Leiðbeiningar

Stífþeytið eggjahvítur og púðursykur. Saxið súkkulaðið smátt. Bætið lakkrískurli og súkkulaði varlega saman við stífþeyttu eggjahvíturnar. Látið á plötu með teskeið. Bakið í miðjum ofni við 150°C í 15-20 mín. Ath! Hiti og tími getur verið breytilegur eftir ofnum. 

Innihald

3 eggjahvítur
200g púðursykur
150g Síríus rjómasúkkulaði
150g Síríus sælkerabakstur Eitt Sett lakkrískurl