Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus

Kahlua trufflur með rjómasúkkulaðihjúp

Leiðbeiningar

Saxið súkkulaðið og setjið í hitaþolna skál.

Setjið rjóma, kaffilíkjör, kaffiduft og smjör saman í lítinn pott og hitið að suðu. Hellið yfir súkkulaðið og látið standa í 1 mín. Hrærið saman og kælið yfir nótt.

Takið skálina úr kæli og mótið litlar kúlur. Athugið að það þarf að vinna það svolítið hratt þar sem fyllingin gæti verið fljót að bráðna, raðið kúlunum á plötu klædda bökunarpappír

Bræðið rjómasúkkulaði yfir vatnsbaði, temprið súkkulaðið. Dýfið hverri kúlu í súkkulaðið, mér finnst best að nota 2 litla gaffla í verkið. Látið sem mest af súkkulaði leka af áður en kúlan er sett á bökunarpappírinn.

Bræðið suðusúkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Dreifið óreglulega yfir hverja kúlu og skreytið með einni kaffibaun. Geymist í kæli.

Innihald

250g suðusúkkulaði

120ml rjómi

2 msk Kahlua kaffilíkjör

1 tsk instant kaffiduft

1 msk smjör

250g rjómasúkkulaði

50g suðusúkkulaði

kaffibaunir