Velkomin á uppskriftasíðu Nóa Síríus
Marengsbomba í mörgum lögum
Leiðbeiningar
Marengs
- Þeytið eggjavítur og edik þar til það byrjar að freyða (geymið rauðurnar þar til þið gerið súkkulaðimúsina).
- Blandið saman sykri og kartöflumjöli og bætið saman við eggjahvíturnar í litlum skömmtum.
- Þeytið þar til stífir toppar hafa myndast og bætið þá vanilludropunum saman við og þeytið aðeins aftur.
- Sigtið að lokum bökunarkakóið yfir blönduna og hellið saxaða súkkulaðinu út í og vefjið saman með sleif.
- Teiknið 2 x 2 hringi (um 15 cm í þvermál) á sitthvora bökunarplötuna, íklædda bökunarpappír.
- Bakið við 170°C í 55 mínútur og leyfið að kólna í ofninum (best að gera þetta daginn áður og leyfa að liggja í ofninum yfir nótt).
Súkkulaðimús og rjómi á milli laga
- Bræðið suðusúkkulaðið og leggið til hliðar.
- Setjið eggjarauður, 200 ml af rjóma og sykur í skaftpott og þeytið saman.
- Hitið eggjablönduna við meðalhita þar til hún þykknar, takið þá af hellunni.
- Hrærið brædda suðusúkkulaðið saman við, hellið blöndunni í skál, plastið og setjið í kæli í að minnsta kosti klukkustund.
- Þeytið þá 200 ml af rjóma og vefjið í nokkrum skömmtum saman við súkkulaðiblönduna, plastið þá að nýju og kælið aftur í klukkustund.
- Hér má þeyta 600 ml af rjóma, hræra aðeins upp í súkkulaðimúsinni og taka til skrautið.
Samsetning
- Setjið smá súkkulaðimús á botninn á kökudiskinum til þess að festa marengsinn.
- Leggið þá fyrsta marengsbotninn á diskinn og dreifið óreglulega út ¼ af músinni og þeytta rjómanum.
- Endurtakið þar til fjögur lög hafa myndast.
- Skreytið þá með ferskum hindberjum og söxuðu súkkulaði.
- Best er að geyma kökuna í kæli í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt áður en hún er borin fram því þá mýkist marengsinn upp.
Innihald
Marengs
- 6 eggjahvítur
- 1 tsk. hvítvínsedik
- 270 g sykur
- 1 msk. kartöflumjöl
- 2 tsk. vanilludropar
- 2 msk. Bökunarkakó
- 80 g saxað suðusúkkulað
Súkkulaðimús og rjómi á milli laga
- 270 g suðusúkkulaði
- 6 eggjarauður
- 5 msk. sykur
- 400 ml rjómi (skipt í 200 og 200 fyrir músina)
- 600 ml af rjómi (til að nota sér fyrir utan músina)
- Hindber og saxað súkkulaði til skrauts