Uppskriftir

Doré draumur

Æðisleg uppskrift eftir Berglindi Hreiðarsdóttur

Leiðbeiningar

Svampbotn

  1. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós.
  2. Sigtið saman hveiti, kartöflumjöl og lyftiduft og bætið varlega saman við.
  3. Setjið bökunarpappír í botninn á 22-24 cm smelluformi og smyrjið formið vel. Hellið blöndunni í formið og bakið við 175°C í 15-20 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út.

Marengs

  1. Þeytið saman eggjahvítur og sykur þar til topparnir halda sér.
  2. Teiknið 18-20 cm hring á bökunarpappír og dreifið jafnt úr marengsblöndunni innan hringsins.
  3. Bakið við 100°C í tvær klukkustundir og leyfið að kólna í ofninum.

Súkkulaðifylling

  1. Þeytið eggjarauður og flórsykur þar til blandan þykkist og lýsist.
  2. Bræðið Barón og Doré súkkulaðið, leyfið hitanum að rjúka úr í nokkrar mínútur og blandið því næst varlega saman við eggjablönduna.
  3. Þeytið rjómann og blandið varlega saman við súkkulaðiblönduna með sleikju.

Rjómi, skraut og samsetning

  1. Þeytið rjómann og bræðið súkkulaðið.
  2. Setjið svampbotninn á kökudisk. Setjið helming þeytta rjómans á svampbotninn og  svo helming súkkulaðifyllingarinnar þar ofan á.
  3. Marengsinn kemur því næst og svo restin af rjómanum og súkkulaðifyllingunni í sömu röð og áður.
  4. Að lokum má dreifa brædda súkkulaðinu ofan á súkkulaðikremið ásamt karamellukurli. Kælið kökuna vel, helst yfir nótt.

Innihald

Svampbotn

3 egg

100 g sykur

45 g hveiti

45 g kartöflumjöl

1 1⁄2 tsk. lyftiduft

Marengs

4 eggjahvítur

190 g sykur

Súkkulaðifylling

4 eggjarauður

60 g flórsykur

60 g Síríus Barón 56% suðusúkkulaði

60 g Síríus Doré karamellusúkkulaðidropar

350 ml rjómi

Rjómi, skraut og samsetning

500 ml rjómi (þeyttur)

50 g Síríus Doré karamellusúkkulaðidropar

Síríus karamellukurl